Auður Jónsdóttir

Stóri skjálfti

„Blóðbragð í munninum. Blaut lærin nuddast saman, ég hef migið á mig í krampanum. Þetta er ekki að gerast. Hvar er hann? Verkurinn í enninu ágerist, eitthvað þrýstir á æðarnar, skall ég á höfuðið? Hljóp hann út í umferðina? Þá væri kominn sjúkrabíll. Eða hvað?“

Saga rankar við sér eftir flogakast á gangstétt við Miklubrautina og þriggja ára sonur hennar er á bak og burt. Það síðasta sem hún man er tveggja hæða strætisvagn sem vegfarandi efast um að hún hafi í raun og veru séð. Næstu daga drottnar efinn yfir huga hennar. Hvað gerðist fyrir flogið? Hverju getur hún treyst? Og hvernig getur hún botnað nokkuð í tilfinningum sínum þegar minnið er svona gloppótt?

Skáldsögur Auðar Jónsdóttur hafa vakið athygli hér heima og erlendis fyrir fágæta blöndu af nístandi einlægni og húmor. Fyrir Fólkið í kjallaranum hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin og Fjöruverðlaunin fyrir Ósjálfrátt. Báðar þessar skáldsögur voru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Stóri skjálfti er áleitin og spennandi saga sem ber öll bestu einkenni höfundar síns.

Útgáfuboð bókarinnar verður haldið í Eymundsson í Austurstræti næsta fimmtudag, kl. 17. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

INNskráning

Nýskráning