Íslensku barnabókaverðlaunin

Samkeppni um handrit að barnabók

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu fyrir börn og unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2016. Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd, miðað við til dæmis grunnstillingu í Word. Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2016. Handritið á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.

Handritum skal skila í fjórum eintökum til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík

Að Íslensku barnabókaverðlaunum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi. Dómnefnd skipuð fulltrúum þessara aðila, auk tveggja nemenda úr 8. bekk, velur sigurhandritið sem kemur út hjá Forlaginu haustið 2016. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna.

Þegar dómnefnd hefur komist að niðurstöðu er umslag með réttu nafni höfundarins opnað og hann látinn vita. Tilkynning um að niðurstaða liggi fyrir birtist þá á heimasíðu Forlagsins og aðrir höfundar mega sækja handrit sín innan hálfs árs, að þeim tíma liðnum er öllum handritum fargað.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt í 30 ár og undanfarin ár hefur metfjöldi handrita borist. Það ber vott um mikla grósku í skrifum fyrir börn og unglinga sem allt bókafólk hlýtur að fagna.

INNskráning

Nýskráning