Meðvirkni

Rjúfðu vítahringinn

Í dag fögnum við útgáfu lykilrits metsöluhöfundarins Piu Mellody um meðvirkni sem er nú í fyrsta skipti fáanleg á íslensku.

Meðvirkni er ástand sem getur haft áhrif á allt líf okkar, fjölskyldu og frama, hugsanir, tilfinningar og hegðun. Ef þeir sem haldnir eru meðvirkni leita sér ekki hjálpar geta þessi áhrif orðið eyðileggjandi og endað í vítahring sem afar erfitt er að komast út úr.

Meðvirkir einstaklingar hafa lagað sig að óeðlilegum aðstæðum ? til dæmis í tilfinningasambandi við fíkla og ofbeldismenn og þeir hjálpa viðkomandi að forðast að takast á við vandamál sín. Rótanna er oft að leita í bernsku hins meðvirka og Pia Mellody telur að til að læknast af meðvirkni þurfi fólk að byrja á að græða sárin sem það varð fyrir í uppeldinu.

Pia Mellody er einn helsti brautryðjandinn í skilgreiningu á meðvirkni og hefur gefið út ýmsar bækur og kennsluefni um greiningu, orsakir og meðhöndlun vandans. Meðvirkni er þekktasta verk hennar og hefur selst í hundruðum þúsunda eintaka.

INNskráning

Nýskráning