Fifty shades of Grey

Önnur prentun komin í hús!

Bókin Fimmtíu gráir skuggar kom út fyrir skömmu hjá Forlaginu og er nú þegar búið að prenta nýtt upplag af bókinni sem er komið í hús. Fyrsta upplagið upp á fimm þúsund eintök rann út eins og heitar lummur og því var ákveðið að endurprenta bókina einungis viku eftir að hún kom út. Næsta bók í þríleiknum mun koma út í byrjun nóvember.

Bóksalar hafa skemmt sér vel við uppstillingu á bókinni, ímyndunaraflið hefur fengið að leika lausum hala og leikmunir eins og undirföt, handjárn og rósir hafa verið notaðir til að búa til rétta stemningu.



INNskráning

Nýskráning