Vilborg Davíðsdóttir

Númer eitt í sögulegum skáldsögum

Skáldsaga Vilborgar Davíðsdóttur, Galdur, er í fyrsta sæti á metsölulista yfir sögulegar skáldsögur á ensku í Þýskalandi. Galdur, sem á ensku nefnist On the Cold Coast, kom fyrst út hjá Random House í Þýskalandi en er nú komin út á ensku hjá AmazonCrossing.

Þessa dagana er verið að prenta nýja skáldsögu eftir Vilborgu sem kemur út fyrir jólin. Skáldsagan ber titilinn Vígroði og er framhald á sögu Auðar djúpúðgu, sem kom út fyrir þremur árum og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

INNskráning

Nýskráning