Stríðsárin

Magnþrungið stórvirki

Á föstudaginn kemur út ný og afar merkileg bók Páls Baldvins Baldvinssonar, Stríðsárin 1938-1945.

Í þessu magnþrungna stórvirki er Ísland fært inn á landakort heimsstyrjaldarinnar síðari og sýnt hvernig það varð órofa hluti af hildarleiknum sem fram fór um víða veröld – og ekki síst á hafinu kringum landið. Grimmd, lífsþorsti, hetjudáðir og hryllingur stríðsátakanna er dreginn fram í fjölda frásagna, fréttaskeyta, leyniskjala, dagbóka og minningabrota, auk þess sem verkið geymir aragrúa ljósmynda, innlendra og erlendra, sem margar koma nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir.

Í bókinni eru yfir 1900 greinar, 3000 ljósmyndir og efnistök aldrei hafa sést áður í viðlíka bók.

Páll Baldvin Baldvinsson, bókmenntafræðingur og menningarrýnir, hefur um árabil haft brennandi áhuga á þessu einstæða tímabili í sögu þjóðarinnar. Verkið er afrakstur gríðarlega umfangsmikillar vinnu hans við söfnun ljósmynda, endurminninga og annarra heimilda um stríðsárin.

Útgáfuboð bókarinnar verður haldið á Kex Hostel föstudaginn 20. nóvember kl. 17. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

INNskráning

Nýskráning