Skáldsagan Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur hefur verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir Íslands hönd.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt fyrir verk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum og uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi. Í sex áratugi hafa verðlaunaverkin endurspeglað samtíma sinn og rutt nýjar brautir í bókmenntum.
„Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur er glæsilega fléttuð frásögn sem ristir djúpt í greiningum sínum á mannlífinu. Jafnframt ögrar verkið vinsælum hugmyndum um rétthugsun, skáldskap og málfrelsi.“ – Úr umsögn dómnefndar
Tól var gefið út árið 2022 og hlaut tilnefningar til Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Forlagið óskar Kristínu innilega til hamingju með tilnefninguna!