Jólin hans Hallgríms

Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju

Sýningin „Jólin hans Hallgríms“ var opnuð Hallgrímskirkju 1. desember og stendur til 6. janúar. Þar eru gömlu jólin sett upp eins og þau voru þegar Hallgrímur Pétursson var lítill strákur.

Sýningin er fyrir börn á öllum aldri. Hún byggir á samnefndri bók Steinunnar Jóhannesdóttur og myndum Önnu Cynthu Leplar og var jólasýning Þjóðminjasafnsins árið 2014. Þar eru myndir og textar úr bókinni ásamt gamaldags munum sem vísa til sögunnar. Gestir geta leikið sér að leggjum og skeljum eins og Hallgrímur og systkini hans gerðu fyrir 400 árum og hlustað á jólasálminn vinsæla, Nóttin var sú ágæt ein, sem Hallgrímur lærir í sögunni.

Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við undirbúning jólanna hjá heimilisfólkinu í Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur átti heima. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.

Sýningin Jólin hans Hallgríms er opin frá 9 – 17 alla daga og er aðgangur ókeypis. Hópar geta bókað heimsókn með því að senda tölvupóst á netfangið inga@hallgrimskirkja.is

INNskráning

Nýskráning