Café Sigrún

Hollustan hefst heima

Allir sem hafa áhuga á hollu mataræði og heilsusamlegum lífsháttum kannast við CafeSigrun-vefinn, þar sem Sigrún Þorsteinsdóttir hefur lengi skrifað um heilsu og matargerð og birt uppskriftir undir kjörorðinu Hollustan hefst heima.

Nú er komin út stórglæsileg matreiðslubók, full af girnilegum uppskriftum fyrir fjölskylduna, þar sem hollustan er lykilatriði. Allar uppskriftirnar eru lausar við hvítan sykur, hveiti og ger og þeim fylgja merkingar þar sem fram kemur hvort rétturinn er glútenlaus, vegan eða hentar þeim sem vilja forðast egg, mjólkurvörur, fræ eða hnetur.

Í bókinni má m.a. finna;

• Morgunverðarrétti
• Heilsudrykki
• Brauð og brauðmet
• Grænmetisrétti og salöt
• Heilkorna-, pasta- og núðlurétti
• Matarmiklar súpur
• Fisk- og kjúklingarétti
• Sósur og ídýfu
• Eftirrétti, kökur og konfekt

Sigrún er klínískur barnasálfræðingur með MSc í heilsusálfræði. Hún er móðir tveggja ungra barna og hefur kappkostað að gefa þeim sem hollasta fæðu. Hún bjó lengi í London og hefur orðið fyrir fjölbreyttum áhrifum af matargerð annarra landa, þar og á ferðalögum sínum um Afríku og víðar.

INNskráning

Nýskráning