Þórarinn Leifsson er fæddur í Reykjavík árið 1966. Hann hefur myndskreytt bækur, bókakápur og blaðagreinar en einnig starfað sem götulistamaður og grafískur hönnuður. Meðal verka hans eru myndskreytingar við röð ævintýra eftir H.C. Andersen sem kom út víða á Norðurlöndum.
Þórarinn skrifar bæði fyrir börn og fullorðna og hefur verið tilnefndur til fjölda verðlauna fyrir myrkar, fyndnar og frumlegar barnabækur sínar. Bæði Bókasafn ömmu Huldar (2009) og Maðurinn sem hataði börn (2014) voru tilnefndar til Norrænu barnabókaverðlaunanna og sú síðarnefnda einnig til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Allar barnabækur Þórarins hafa komið út erlendis líka. Götumálarinn (2011), fyrsta fullorðinsbók Þórarins, var tilnefnd til Menningarverðlauna DV.
Síðustu ár hefur Þórarinn starfað sem leiðsögumaður og upp úr þeirri reynslu hans sprettur hin ísmeygilega og meinfyndna glæpasaga Út að drepa túrista (2021) sem veitir einstaka innsýn í furðulegustu atvinnugrein landsins um það leyti sem kórónuveiran kemst á skrið. Hún hefur hlotið lofsamlega dóma.