Svava Jakobsdóttir var einn fremsti rithöfundur Íslendinga á 20. öld. Hún var auk þess baráttukona fyrir jafnrétti og hafði mikil áhrif á sinn samtíma með sögum sínum, leikritum og fræðiskrifum.
Hún braut blað í íslenskri sagnagerð og fáir deila um þær nýjungar sem hún innleiddi varðandi söguefni og frásagnahátt. Hún var frumkvöðull og hefðarbrjótur bæði á sviði skáldskapar og skáldskaparfræða en á seinni árum vöktu fræðilegar ritgerðir hennar um bókmenntir mikla athygli.