Sigrún Elíasdóttir er fædd 1978 og uppalin í Borgarfirði. Hún er með meistaragráður í bæði sagnfræði og ritlist og hefur fengist við ritstörf af ýmsu tagi; ævisagnaritun, gerð kennsluefnis fyrir miðstig, endursögn á Hómerskviðum og ritun lestrarbóka.
Sigrún skrifar bráðskemmtilegar fantasíur fyrir yngri lesendur. Á árunum 2019–2021 kom út þríleikur eftir hana sem ber nafnið Ferðin á heimsenda. Þar segir frá vinunum ólíku Húgó og Alex sem þurfa að leggja í mikla hættuför til að bjarga heimabyggð sinni. Hraði, spenna, húmor og feykilegur fjöldi skrímsla einkenna sögurnar sem Sigmundur B. Þorgeirsson myndlýsir af mikilli list.