Ragna Sigurðardóttir (Ragnheiður Sigurðardóttir) er fædd í Reykjavík 10. ágúst 1962. Hún lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hélt eftir útskrift í framhaldsnám til Hollands. Um skeið bjó hún í Danmörku og starfaði áður sem myndlistarmaður og skrifaði myndlistargagnrýni í áratug. Nú starfar Ragna sem rithöfundur og þýðandi.
Ragna hóf feril sinn á stuttum prósastykkjum og ljóðum, myndrænum og stundum myndskreyttum. Hún gaf út bókverkið Stefnumót árið 1987, ljóðabókina Fallegri en flugeldar 1989 og prósaljóðabókina 27 herbergi 1991. Árið 1993 kom fyrsta skáldsaga Rögnu út, Borg, sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.