Nanna Rögnvaldardóttir fæddist 20. mars 1957 og ólst upp í Skagafirði. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1977 og stundaði síðan nám í sagnfræði við Háskóla Íslands um tíma. Hún starfaði lengi við bóka- og tímaritaútgáfu meðal annars hjá Iðunni og Forlaginu.
Nanna hefur skrifað fjölda bóka um matargerð og matarsögu, þar á meðal stórvirkið Matarást sem var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hlaut viðurkenningu Hagþenkis og viðurkenningu bókasafnsfræðinga sem besta uppflettiritið. Af öðrum matreiðslubókum hennar má nefna Matreiðslubók Nönnu, Jólamat Nönnu og Sætmeti án sykurs. Einnig hefur hún skrifað bækur um íslenska matargerð á ensku og má þar nefna Icelandic Food and Cookery, Cool Cuisine og Does Anyone Actually Eat This?
Árið 2023 kom út fyrsta skáldsaga Nönnu, Valskan, en frásögnina byggir hún á lífi formóður sinnar og fléttar saman heimildum og skáldskap svo úr verður grípandi saga um harða lífsbaráttu, þrautseigju og ástir. Valskan hlaut fádæma viðtökur lesenda og var valin frumraun ársins hjá Dagmálum, frétta- og dægurmálaþætti Morgunblaðsins. Árið 2024 sendi Nanna svo frá sér sögulegu glæpasöguna Þegar sannleikurinn sefur. Atburðarásina byggir hún lauslega á þekktu morðmáli frá árinu 1704 en spinnur þó glænýja sögu, skáldar persónur og dregur upp ljóslifandi mynd af flækjukenndu réttarfari 18. aldar og siðferðisfjötrum Stóradóms.
Nanna er jafnframt ötull þýðandi.