Heimili höfundanna

Jóna Valborg Árnadóttir
Jóna Valborg Árnadóttir
Jóna Valborg er fædd 1973 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands og B.A. gráðu í íslensku, M.Paed. gráðu í íslensku og kennslufræði og MS gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi og diplóma í verkefnastjórnun. Á unglingsárum lék Jóna Valborg með hinum ýmsu áhugaleikfélögum. Hún dvaldi um hálfs árs skeið sem Erasmus-skiptinemi við dramatúrgíu-deild háskólans í Árósum. Jóna Valborg hefur starfað við markaðs- og kynningarmál, verkefna- og viðburðastjórnun, ritstjórn, almannatengsl, mannauðsmál og sýningarstjórnun. Um tíma kenndi hún framhaldsskólanemendum íslensku, lífsleikni og leiklist. Á árunum 2004 til 2006 sat hún í ritnefnd tímaritsins Börn og menning. Ritstörf hafa fylgt Jónu Valborgu svo lengi sem hún man eftir sér en árið 2013 kom hennar fyrsta bók út. Brosbókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Vorvindaviðurkenningu IBBY. Bækurnar vinnur hún með Elsu Nielsen, grafískum hönnuði og teiknara. Vorið 2019 dvaldi Jóna Valborg um þriggja vikna skeið við skriftir í Åmål í boði AIR Litteratür Västra Götaland. Hún er félagsmaður í SÍUNG og Rithöfundasambandi Íslands og hefur á þeirra vegum tekið þátt í bókmenntaverkefninu Skáld í skólum.

Bækur eftir höfund

Systkinabókin
Systkinabókin
3.390 kr.
Kormakur pakki
Kormákur - pakki
5.160 kr.
Kormákur leikur sér
Kormákur leikur sér
1.390 kr.
Kormákur dýravinur
Kormákur dýravinur
1.290 kr.
Einn, tveir og Kormákur
Einn, tveir og Kormákur
1.290 kr.
Kormákur krummafótur
Kormákur krummafótur
1.290 kr.
hetjubokin
Hetjubókin
2.990 kr.
vinabokin
Vinabókin
2.990 kr.
Knúsbókin
Knúsbókin
2.690 kr.
brosbokin
Brosbókin
1.695 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning