Ingólfur Eiríksson (1994) útskrifaðist úr meistaranámi í nútímabókmenntum frá Edinborgarháskóla árið 2019 og stundar nú nám í ritlist við Háskóla Íslands. Klón: Eftirmyndasaga er önnur ljóðabók hans, en sú fyrsta var Línuleg dagskrá (2018), sem kom út hjá Partus Press. Fyrsta skáldsaga hans er væntanleg hjá Máli og menningu í haust.