Hallgrímur Helgason er þúsundþjalasmiður í íslensku menningarlífi og hefur komið við í ýmsum kimum bókmenntanna auk þess að stunda myndlist og samfélagsumræðu. Hann lærði myndlist í Reykjavík og München og hefur frá árinu 1982 starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður og rithöfundur.
Fyrsta skáldsaga Hallgríms, Hella, kom út árið 1990 og síðan hefur hann sent frá sér fjölda skáldsagna auk leikrita, ljóðabóka og þýðinga. Skáldsögur hans hafa komið víða út erlendis, verið kvikmyndaðar og settar á svið. Nýjasta skáldsaga hans, Sextíu kíló af sunnudögum, er síðasta bindi þríleiksins um Gest Eilífsson á Segulfirði. Fyrri bindin eru Sextíu kíló af sólskini og Sextíu kíló af kjaftshöggum. Í þríleiknum lýsir Hallgrímur ferðalagi Íslendinga úr myrkum torfgöngum inn í raflýstar stofur, magnað verk þar sem sögusviðið er síldarævintýrið mikla á Siglufirði. Örlagasaga Gests hefur hitt lesendur í hjartastað og bækurnar notið mikilla vinsælda.
Hallgrímur hefur hlotið ófáar viðurkenningar á ferli sínum sem rithöfundur. Árið 2021 var hann sæmdur Heiðursorðu Frakka fyrir framlag sitt til lista og bókmennta, hefur þrisvar verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og bæði fengið Íslensku þýðingarverðlaunin og Íslensku hljóðbókaverðlaunin. Þá hefur hann hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin þrisvar sinnum, fyrir Höfund Íslands 2001, Sextíu kíló af sólskini 2018 og Sextíu kíló af kjaftshöggum 2021.