Bubbi Morthens (Ásbjörn Kristinsson Morthens) er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður landsins um áratuga skeið. Opinber tónlistarferill hans hófst með plötunni Ísbjarnarblús sem kom út árið 1980 og náði miklum vinsældum. Alla tíð síðan hefur hann verið gríðarlega afkastamikill við laga- og textasmíðar, tónlistarútgáfu og tónleikahald. Plöturnar hans skipta tugum, lögin hundruðum og sum þeirra hafa náð sannkallaðri þjóðarhylli; þau þekkir hvert mannsbarn.
Fyrsta bók Bubba var barnabókin Rúmið hans Árna sem kom út 1994 með myndskreytingum bróður hans, myndlistarmannsins Tolla. Í kjölfarið fylgdu fleiri bækur frá Bubba, einkum um stangveiði, og á síðustu árum hefur hann sent frá sér magnaðar ljóðabækur sem vakið hafa mikla athygli – sú fyrsta var Öskraðu gat á myrkrið sem kom út 2015. Enn fremur hafa verið skrifaðar bækur um listamanninn sjálfan og feril hans, til að mynda skráði Silja Aðalsteinsdóttir sögu hans í bókinni Bubbi árið 1990.
Bubbi hefur verið óragur við að taka afstöðu og láta í sér heyra um ýmis átakamál samtímans og oft verið umdeildur af þeim sökum, en enginn efast um listræna hæfileika hans og atorku. Frá og með árinu 2019 nýtur hann heiðurslauna listamanna frá Alþingi.