Brian Pilkington, fæddur 1950, hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka og hefur á undanförnum árum lagt sérstaka rækt við íslenska þjóðtrú og vættir. Bók hans Allt um tröll hlaut viðurkenningu ferðamálaráðs sem besta hugmynd að minjagrip frá Íslandi árið 1999 og hefur komið út á nokkrum tungumálum. Í kjölfar hennar hefur Brian sent frá sér fleiri bækur um íslensku jólavættirnar sem vakið hafa lukku og aðdáun innan lands og utan.
Þá hefur Brian myndskreytt bækur annarra höfunda, meðal annars Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur, Blómin á þakinu eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og Hundrað ára afmælið eftir Þráin Bertelsson, en fyrir þá síðastnefndu hlutu höfundarnir Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur.
Brian hlaut Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir bók sína Mánasteinar í vasanum og var tilnefndur til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur fyrir myndirnar í Jólakötturinn tekinn í gegn.