Heimili höfundanna

Bergur Ebbi
Bergur Ebbi
Bergur Ebbi er fæddur árið 1981. Hann varð stúdent frá MH, lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands og stundaði nám í framtíðarfræðum í Toronto í Kanada. Bergur Ebbi er fjölhæfur listamaður og skemmtikraftur og hefur fengist við sitt af hverju, m.a. uppistand, tónlist og þáttagerð, auk ritstarfa. Fyrsta bók Bergs Ebba var ljóðabókin Tími hnyttninnar er liðinn sem kom út árið 2010 en fyrir handrit hennar hlaut hann Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs. Hann hefur sent frá sér fleiri ljóð en einnig hefur hann skrifað geysivinsælar bækur þar sem hann rýnir af snerpu og eldmóði í samtímann; upplýsingaflæði, samfélagsmiðla, tækninýjungar og fjölmargt annað sem einkennir nútímasamfélag og hefur áhrif á sjálfsmynd fólks og viðhorf til umheimsins. Auk bókanna hefur Bergur Ebbi skrifað fjölda beittra og skemmtilegra pistla í blöð og samið handrit að leiknu efni. Þá hefur hann starfað sem grínisti með uppistandshópnum Mið-Íslandi, haldið úti vinsælum hlaðvarpsþáttum og samið lög og texta.

Bækur eftir höfund

Screenshot
Screenshot
3.490 kr.
Skjáskot
Skjáskot
990 kr.3.390 kr.
Stofuhiti
Stofuhiti
990 kr.3.790 kr.
attachment-566933
Tími hnyttninnar er liðinn
2.090 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning