Benný Sif Ísleifsdóttir (f. 1970) er með MA-próf í þjóðfræði auk BA-gráðu í þjóðfræði og diplóma í hagnýtri íslensku frá Háskóla Íslands. Hún kom nokkuð geyst fram á íslenskt bókmenntasvið og hefur á örfáum árum markað sér spor þar. Benný hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2018 fyrir handritið að skáldsögunni Grímu sem kom út sama ár. Gríma vakti nokkra athygli, spurðist vel út meðal lesenda og hlaut Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel awards. Í barnabókunum Jólasveinarannsóknin (2018) og Álfarannsóknin (2019) er hugvitsamlega fléttað saman fróðleik og fjöri en skáldsagan Hansdætur kom svo út árið 2020 og hlaut strax mikið lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Evrópsku bókmenntaverðlaunanna. Aðdáendur Bennýjar fögnuðu svo þriðju skáldsögunni haustið 2021: Djúpið. Skáldsögur Bennýjar eru örlagasögur fólks úr íslenskum veruleika, höfundur tvinnar haganlega saman sorgir og sigra sögupersónanna og lesandinn getur vart annað en hrifist með. *Fróðleiksmoli um fallbeygingu: Hér er Benný Sif um Benný Sif frá Benný Sif til Bennýjar Sifjar