Í sumar hefur Borgarbókasafnið, Reykjavík bókmenntaborg og Forlagið staðið fyrir skemmtilegu lestrarfjöri. Krakkar á öllum aldri hafa verið dugleg að lesa í sumar, skrifað um bókina og sett í pott hjá öllum útibúum Borgarbókasafnsins.
Í hverri viku hefur nafn eins heppins bókaorms verið dregið úr potti og hefur viðkomandi fengið fína bók frá Forlaginu í verðlaun. Nú í lok sumars var dregið úr öllum innsendum miðum og fékk vinningshafinn, Lára Björk, hjól frá Erninum í verðlaun auk veglegrar bókagjafar frá Forlaginu.
Forlagið óskar Láru Björk til hamingju með verðlaunin og þakkar öllum bókaormum fyrir þátttökuna í sumar!