Og svo tjöllum við okkur í rallið

Guðmundur Andri og Thor tjalla sér í rallið

„Rimsírams,“ segir hann við mig og þá veit ég að við erum að fara að bralla eitthvað. Ég veit líka hvað kemur næst: „Og flimsíflams.“ Svo kemur dálítil þögn eins og hann sé að hugsa sig um.

Og allt í einu man hann það: „Ballíbæ. Og plíng-hó.“

„Tjallírall,“ segi ég uppörvandi eftir smáþögn.

Hann hvessir augun annars hugar eins og hann horfi inn í sig. Svo tekur hann bíllyklana af brauðhillunni í eldhúsinu og segir svolítið hugsi um leið og við förum út úr dyrunum: „Og svo tjöllum við okkur í rallið.“

Thor Vilhjálmsson var einn helsti rithöfundur landsins og þjóðkunnur sem einarður málsvari lista, menningar og mannúðar. Hann var líka óhemju svipsterkur og sópaði að sér athygli hvarvetna með öllu sínu fasi. Sonur hans, Guðmundur Andri, hefur valið ljósmyndir úr fórum Thors til þess að minnast hans. Af næmi og listfengi dregur hann upp einstæða mynd af skapmiklum og flóknum manni sem oft átti í útistöðum við umhverfi sitt, en var jafnframt hlýr húmanisti sem lagði allt í sölurnar fyrir listina. Einlæg lýsing Guðmundar Andra á Thor og sambandi þeirra feðga er hjartnæm og minnisstæð.

Undurfalleg bók sem hittir lesandann beint í hjartastað.

Hér má lesa brot úr Og svo tjöllum við okkur í rallið.

INNskráning

Nýskráning