Forlagið gefur út bækur undir merkjum Máls og menningar, Vöku-Helgafells, JPV og Iðunnar og rekur einnig metnaðarfulla kortaútgáfu. Hjá Forlaginu koma út ríflega eitt hundrað nýir titlar ár hvert; bækur af öllu tagi og gerðum og á ýmsum tungumálum. Þá kemur Tímarit Máls og menningar út fjórum sinnum á ári. 

Forlagið var stofnað árið 2007 og eigandi þess er bókmenntafélagið Mál og menning. Hjá Forlaginu starfa um 40 starfsmenn. Stjórn Forlagsins skipa Halldór Guðmundsson, formaður; Árni Einarsson, varaformaður; Daníel Helgason; Ragnhildur Helgadóttir og Örnólfur Thorsson.

Árið 2023 setti Forlagið á stofn Reykjavík Literary Agency sem annast réttindasölu á íslenskum bókum til erlendra útgefenda, kvikmyndaframleiðenda og annarra aðila.  

Forlagið rekur tvær bókabúðir, auk vefverslunarinnar á þessari síðu. 

Bókabúð Forlagsins er til húsa að Fiskislóð 39, á Grandanum í Reykjavík. Þar má finna bækur allra helstu útgefenda landsins – og ekki bara þær nýjustu heldur verulegt magn eldri titla. Á Fiskislóðinni er nægt pláss fyrir allar tegundir bóka og þær fást á kostakjörum árið um kring. Í september er þar haldinn veglegur bókamarkaður. Verslunarstjóri er Héðinn Finnsson.  

hedinn@forlagid.is S: 575 5636 

Opnunartími
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 12–16.
Opnunartími er rýmkaður á bókamarkaði og í aðdraganda jóla.
 

Skrifstofur Forlagsins eru til húsa að Bræðraborgarstíg 7. Þar er einnig lítil verslun með nýjustu bókunum sem út koma undir merkjum Forlagsins. 

forlagid@forlagid.is S: 575 5600 

Kt: 600201-2390 , VSK nr: 70372  

Opnunartími
September til maí:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9–17.
Föstudaga kl. 9:30–17.
 

Júní til ágúst:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9–16.
Föstudaga kl. 9:30–16.
 

Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39

Skrifstofur Forlagsins, Bræðarborgarstíg 7.

INNskráning

Nýskráning