Café Sigrún

Fimm stjörnu matreiðslubók

Allir sem hafa áhuga á hollu mataræði og heilsusamlegum lífsháttum kannast við CafeSigrun-vefinn, þar sem Sigrún Þorsteinsdóttir hefur lengi skrifað um heilsu og matargerð og birt uppskriftir undir kjörorðinu Hollustan hefst heima.

Í vikunni birtist í Morgunblaðinu dómur Árna Matthíassonar um Café Sigrúnu þar sem hún hlaut fimm stjörnur, full hús stiga. Í dómi sínum segir Árni meðal annars:

„Gríðarmikið er af fróðleik í bókinni, sérstaklega fyrir þá sem ekki hafa spreytt sig á framandlegri matreiðslu, en ekkert hráefni rakst ég á sem ekki er fáanlegt hér á landi … Leiðbeiningarnar eru líka greinargóðar og lýsandi. Frágangur á bókinni er til mikillar fyrirmyndar, uppsetning einkar góð og myndir, sem Sigrún tekur sjálf, eru hreint afbragð.“

Í bókinni er að finna fjölda girnilegra uppskrifta að góðgæti fyrir fjölskylduna. Allar eru lausar við hvítan sykur, hveiti og ger og þeim fylgja merkingar þar sem fram kemur hvort rétturinn er glútenlaus, vegan eða hentar þeim sem vilja forðast egg, mjólkurvörur, fræ eða hnetur.

Sigrún er klínískur barnasálfræðingur með MSc í heilsusálfræði. Hún er móðir tveggja ungra barna og hefur kappkostað að gefa þeim sem hollasta fæðu. Hún bjó lengi í London og hefur orðið fyrir fjölbreyttum áhrifum af matargerð annarra landa, þar og á ferðalögum sínum um Afríku og víðar.

INNskráning

Nýskráning