Fifty shades of Grey

Fifty shades á íslensku!

Þríleikurinn sem hefst á bókinni Fifty shades of Grey eftir E.L James hefur farið sigurför um heiminn og er einstaklega vinsæll meðal kvenna. Íslenskar konur (og karlar!) fá að sjálfsögðu einnig að njóta bókanna en fyrsta bókin kemur út á íslensku í byrjun september. Hinar tvær bækurnar munu fylgja fljótt í kjölfarið svo að enginn þurfi að bíða lengi eftir framhaldinu.

Bækurnar hafa vakið mikla eftirtekt fyrir erótískan söguþráð og vegna gífurlegra vinsælda hjá konum á þrítugs- og fertugsaldri hafa þær fengið viðurnefnið Mömmuklám. Handritshöfundar Saturday Night Life gripu það aldeilis á lofti og gerðu grín af því eins og þeim einum er lagið. Hér má sjá atriðið úr SNL.



INNskráning

Nýskráning