Tvær nýjar bækur eftir Eddu Heiðrúnu Bachman og Þórarin Eldjárn eru komnar út. Edda Heiðrún málaði vatnslitamyndir sem Þórarinn Eldjárn ljóðskreytti. Ása og Erla fjallar um vinkonur sem brasa ýmislegt saman ásamt kettinum Erla. Í Vaknaðu, Sölvi er Sölvi rekinn á fætur af læðunni Týru sem vill fara að veiða og eyða vinirnir deginum saman niðri á höfn.
Allur ágóði af sölu bókanna rennur til Hollvina Grensásdeildar.