Guðrún Eva

Englaryk Guðrúnar Evu

Guðrún Eva Mínervudóttir er einn okkar snjallasti höfundur og í dag fögnuðum við útgáfu nýrrar skáldsögu hennar, Englaryk.

Englaryk er saga um mannleg tengsl, hversdagsþrautir og mátt hugsjónanna. Er hægt að feta veg kærleikans án þess að fara í taugarnar á öllum í kringum sig?

Boulanger-fjölskyldan í Stykkishólmi er til meðferðar hjá geðlækninum Snæfríði Björnsdóttur. Eftir að dóttirin Alma hitti Jesú í sumarfríi fjölskyldunnar á Spáni fór hversdagslífið úr skorðum. Þegar Alma einsetur sér að fylgja fordæmi frelsarans — bjóða hinn vangann og hjálpa sínum minnsta bróður — hrindir hún af stað atburðarás sem hneykslar bæjarbúa. Foreldrarnir taka í taumana og er ráðgjöfinni ætlað að koma Ölmu aftur niður á jörðina. Hjá Snæfríði verða hins vegar allir í fjölskyldunni að horfast í augu við eigin breyskleika og uppgjör er óumflýjanlegt.

Guðrún Eva Mínervudóttir (f. 1976) vekur ávallt athygli fyrir frumleg og fáguð tök sín á töfrum hversdagsins. Skáldsögur hennar hafa verið gefnar út víða um heim, hlotið mikið lof gagnrýnenda og fengið endurteknar tilnefningar til bókmennta- og menningarverðlauna en Íslensku bókmenntaverðlaunin hlaut Guðrún Eva árið 2011 fyrir Allt með kossi vekur og Menningarverðlaun DV árið 2005 fyrir Yosoy.

INNskráning

Nýskráning