Ég vil fisk komin aftur!

Bókin sívinsæla Ég vil fisk eftir hina margverðlaunuðu Áslaugu Jónsdóttur er nú loks komin aftur!

Í bókinni segir frá lítilli stelpu sem veit hvað hún vill. Hún vill fisk! En það er sama hvað hún segir foreldrum sínum það oft, aldrei skilja þeir hvað hún á við. Mamman og pabbinn eru öll af vilja gerð og færa dóttur sinni ýmislegt tengt fiskum – fiskabangsa, fiskabúning og púsluspil með fiski – en alltaf eitthvað allt annað að borða um kvöldið.

Ég vil fisk! er spriklandi skemmtileg bók fyrir krakka sem vita hvað þau vilja!

INNskráning

Nýskráning