Dauðinn keyrir Audi

Dauðinn ekur Audi

Í dag kemur út bókin Dauðinn keyrir Audi eftir danska höfundinn Kristian Bang Foss en um er að ræða fallega, ljúfsára og eilítið kaldhæðna bók af stórkostlegu ferðalagi tveggja vina.

Allt leikur í lyndi hjá Asger þar til hann missir vinnuna á auglýsingastofunni. Á endanum fær hann þó starf sem aðstoðarmaður hjá Waldemar, fötluðum manni sem er sérfróður um sjaldgæfa og óhugnanlega sjúkdóma. Saman halda þeir félagarnir í stórkostlegt ferðalag til Marokkó þar sem Waldemar vonast til að fá bót meina sinna hjá heilaranum Torbi el Mekki. En svo virðist sem einhver veiti þeim eftirför …

Dauðinn ekur Audi er þriðja bók Kristians Bang Foss. Henni hefur verið tekið með kostum og kynjum og hlaut hún meðal annars Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins.

Hárbeitt, gráglettin og átakanleg saga sem situr í hjartanu að lestri loknum.

INNskráning

Nýskráning