Fyrir skömmu kom út ný bók eftir Hugleik Dagsson. Sú ber titilinn Enn fleiri íslensk dægurlög, en þetta er þriðja bókin þar sem Hugleikur snýr út úr vinsælum íslenskum dægurlögum á sinn einstaka hátt.
Í kjölfar útgáfunnar var opnuð sölusýning á verkum Hugleiks í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Þar er nýbúið að stofna gallerý á 2. hæð og fékk Hugleikur heiðurinn að opna nýja gallerýið með myndum sínum. Á sýningunni eru bæði eldri og nýrri verk til sýnis, og til sölu.