Svava

Bókmenntamerking til heiðurs Svövu Jakobsdóttur

Á morgun, miðvikudaginn 7. október kl. 17:15, verður afhjúpuð bókmenntamerking til heiðurs Svövu Jakobsdóttur við Austurvöll, á horni Kirkjustrætis og Pósthússtrætis. Sonardætur Svövu, þær Svava og Ásta-María Jakobsdætur, afhjúpa merkinguna. Strax í kjölfarið leiða Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og María Þórðardóttir leikkona göngu um slóðir skáldkvenna í miðborginni.

Bókmenntaborgin Reykjavík hóf að kortleggja og merkja skáldaslóðir í borginni með bókmenntamerkingum á öðru starfsári sínu og var fyrsta merkingin afhjúpuð á Lestrarhátíð í október 2012. Hún er í Aðalstræti þar sem Langibar (Adlon) stóð og er tileinkuð Elíasi Mar. Bókmenntamerkingarnar eru hluti af menningarmerkingum Reykjavíkurborgar þar sem vakin er athygli á sögu og menningu borgarinnar í borgarlandinu.

Eftir athöfnina leiða Úlfhildur og María bókmenntagöngu um slóðir skáldkvenna í miðborginni. Farið verður á milli staða sem hafa verið merktir konum í bókmenntasögu borgarinnar, m.a. Theodóru Thoroddsen, Málfríði Einarsdóttur og Ástu Sigurðardóttur. Síðastnefnda merkingin stendur við Laugaveg 11, en þar var vinsælt kaffihús á sjötta áratug síðustu aldar, sem var mikið sótt af skáldum og listamönnum. Í göngunni verður fjallað um margs konar söguefni þessarar kvenna og skáldsystra þeirra, svo sem spegla, þvotta, ástir og ölvun svo fátt eitt sé nefnt.

Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund á rólegu rölti.

INNskráning

Nýskráning