Bókakonfekt 19. nóv

Bókakonfekt #2

Á morgun, miðvikudaginn 19. nóvember, efnum við til Bókakonfekts númer tvö! Það var þéttsetið á Rosenberg síðasta miðvikudagskvöld þar sem sjö höfundar Forlagsins kynntu verkin sín. Það er því um að gera að mæta tímanlega til þess að fá sæti.

Upplestrarkvöldin eru alltaf vel sótt og fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks.

Bækur höfunda eru seldar á staðnum, og eins og áður hafa höfundar verið liðlegir við að árita ef þess er óskað.

Fyrstu 30 sem mæta hvert kvöld er boðið upp á drykkjarmiða sem hægt er að nýta á barnum.

Bókakonfektin hefjast kl. 20:00

Miðvikudaginn 19. nóvember
Soffía Bjarnadóttir
Kristín Eiríksdóttir
Gísli Pálsson
Sigurður Pálsson
Sigurbjörg Þrastardóttir
Kristín Steinsdóttir
Orðbragð

Miðvikudaginn 26. nóvember
Sverrir Norland
Ævar Þór Benediktsson
Gerður Kristný
Þórarinn Eldjárn
Eggert Þór Bernharðsson
Bryndís Björgvinsdóttir
Halldór Armand Ásgeirsson
Steinar Bragi

Sjáumst á Bókakonfekti!

INNskráning

Nýskráning