Aukaspyrna á Akureyri: Fótboltasagan mikla #2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 294 | 2.590 kr. | ||
Kilja | 2019 | 293 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Aukaspyrna á Akureyri: Fótboltasagan mikla #2
990 kr. – 2.590 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 294 | 2.590 kr. | ||
Kilja | 2019 | 293 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Akureyri. Höfuðstaður Norðurlands. Stærsta borgin utan Reykjavíkursvæðisins. Vetraríþróttamiðstöð Íslands. Fótboltaparadís. Veðravíti. Fram undan var fjögurra daga óopinbert íslandsmót fimmta flokks drengja í fótbolta. N1-mótið. Enn eitt mótið. Við vorum mættir. Besta lið á Íslandi. Þróttur.
Aukaspyrna á Akureyri er æsispennandi saga sem stelpur og strákar um allt land hafa beðið óþreyjufull eftir síðan þau lögðu frá sér Víti í Vestmannaeyjum. Hér halda Jón Jónsson og vinir hans áfram að berjast um sigur, á fótboltavellinum og utan hans. Eins og alltaf gengur sumt vel og annað ekki, og það eitt er víst að maður veit aldrei hvert boltinn rúllar!
Víti í Vestmannaeyjum hitti beint í mark hjá lesendum og óhætt er að fullyrða að Aukaspyrnan geri það líka!
3 umsagnir um Aukaspyrna á Akureyri: Fótboltasagan mikla #2
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Höfundur kann einfaldlega að búa til grípandi frásögn sem heldur vel og hreinlega togar lesandann áfram … Bókin er í stuttu máli sagt jafn ljómandi vel heppnuð og Víti í Vestmannaeyjum og stefnir í að boltabækurnar um Þróttarann Jón Jónsson komi sér fyrir á klassísku hillunni fyrir íslenskar barna- og unglingabækur.“
Jón Agnar Ólason / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Klárlega jólabókin í ár fyrir alla káta krakka sem hafa gaman af boltanum og sér í lagi þá krakka sem þekkja fótboltaferðalög af eigin raun.“
Guðrún Halldórsdóttir / pjattrofurnar.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Ég get vel ímyndað mér að fyrir börn sem hafa brennandi áhuga á fótbolta sé þetta jólabókin í ár. Og þessi bók er ekki bara fyrir fótboltastráka. Fótboltastelpur finna einnig fínar fyrirmyndir í sögunni. … Ágætlega skrifuð, fallega myndskreytt og vandlega útskýrð fyrir þá sem lítið vit hafa boltanum.“
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir / Fréttablaðið