Vilborg Davíðsdóttir

Ástin, drekinn og dauðinn

Ástin, drekinn og dauðinn heitir ný bók Vilborgar Davíðsdóttur sem kemur út næsta fimmtudag. Í bókinni lýsir hún vegferð sinni og hennar heittelskaða með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Bókin veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu.

Vilborg hefur hlotið lof fyrir skáldsögur sínar þar sem sterkar konur fyrri alda takast á við örlög sín. Hér lendir hún sjálf í ógnþrungnu ævintýri sem lætur engan ósnortinn.

„Við erum á vissan hátt heppin,“ segir Björgvin upp úr eins manns hljóði. „Flestir sem fá svona fréttir þurfa að endurskoða líf sitt, jafnvel snúa því á hvolf. Við þurfum þess ekki því við lifum einmitt því lífi sem okkur langar mest til.“ Það má til sanns vegar færa; við höfum látið drauma okkar rætast, hvern af öðrum. En mér finnst þetta samt ósanngjarnt og segi það við hann. „Ósanngjarnt?“ Hann sperrir dökkar brýnnar í spurn. „Væri það sanngjarnara ef einhver annar hefði fengið þetta heilaæxli?“

Í tilefni af útgáfunni verður efnt til útgáfuhófs í verslun Eymundsson í Austurstræti fimmtudaginn 19. mars kl. 17. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Hér má finna frekari upplýsingar um viðburðinn.

Miðvikudaginn 25. mars verður Vilborg svo í Hannesarholti kl. 20 og segir frá bókinni. Hér má finna frekari upplýsingar um viðburðinn.


INNskráning

Nýskráning