[ti_wishlist_products_counter]

Áslaug Jónsdóttir hlýtur viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins

Áslaug Jónsdóttir, rit-og myndhöfundur, hlaut í gær viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins.

Í rökstuðningi dómnefndar kom meðal annars fram:

„Viðurkenninguna hlýtur Áslaug fyrir fjölbreytt verk sín og framlag til íslenskra bókmennta, barnamenningar og myndlistar. Áslaug er fjölhæfur listamaður en auk þess að skrifa bækur sem eiga sér aðdáendur á öllum aldri, hérlendis og víða um veröld, er hún mikilvirkur myndskreytir og hönnuður. Hugkvæmni, húmor og virðing fyrir fjölbreytileika alls lífs eru ákveðin leiðarstef í höfundaverki Áslaugar. Af skrifum hennar má margt gott og gagnlegt læra, en líka hrífast, verða hissa og hugsa hluti upp á nýtt. Frá árinu 1990 hefur Áslaug ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra (2024).“

Áslaug Jónsdóttir er fædd árið 1963 á bænum Melaleiti í Melasveit í Borgarfirði. Hún stundaði nám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá Listiðnaðarskólanum í Kaupmannahöfn (Skolen for Brugskunst – Danmarks designskole) árið 1989. Áslaug hefur starfað sem myndhöfundur, grafískur hönnuður, rithöfundur og myndlistarmaður frá því hún lauk námi. Hún hefur skrifað og myndlýst fjölda barnabóka og tekið þátt í samsýningum, bæði hérlendis og erlendis, skrifað leikgerðir upp úr bókum sínum og sent frá sér ljóðabækur og bókverk. Áslaug hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, hefur tvisvar fengið Dimmalimm, íslensku myndlýsingaverðlaunin og árið 2002 hlaut hún, ásamt Andra Snæ Magnasyni, Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins fyrir Söguna af Bláa hnettinum. Þá hefur söguflokkurinn um Skrímslin, sem hún hefur unnið ásamt Kalle Güettler og Rakel Helmsdal, farið sigurför um heiminn og komið út á fjölmörgum tungumálum, en Skrímsli í vanda hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2017 í flokki barna og ungmennabóka.

Ávarpið sem Áslaug flutti við athöfnina má nálgast á heimasíðu RSÍ.

Starfsfólk Forlagsins óskar Áslaugu innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu!