Tvær íslenskar bækur, Skuggasund eftir Arnald Indriðason og Gildran eftir Lilju Sigurðardóttur, eru tilnefndar til Gullna rýtingsins í flokki þýddra bóka (CWA International Dagger). Gullrýtingurinn er verðlaun Samtaka breskra glæpasagnahöfunda og eru talin eftirsóttustu alþjóðlegu glæpasagnaverðlaun heims.
Hér má sjá þá sem tilnefndir eru:
- Zen and the Art of Murder – Oliver Bottini tr. Jamie Bulloch, MacLehose
- The Shadow District – Arnaldur Indriðason tr. Victoria Cribb, Harvill Secker
- Three Days and a Life – Pierre Lemaitre tr. Frank Wynne, MacLehose
- After the Fire – Henning Mankell tr. Marlaine Delargy, Harvill Secker
- The Frozen Woman – Jon Michelet tr. Don Bartlett, No Exit Press
- Offering to the Storm – Dolores Redondo tr. Nick Caistor & Lorenza Garzía, HarperCollins
- Three Minutes – Roslund & Hellström tr. Elizabeth Clark Wessel, Quercus/riverrun
- Snare – Lilja Sigurdardóttir tr. Quentin Bates, Orenda
- The Accordionist – Fred Vargas tr. Sian Reynolds, Harvill Secker
- Can You Hear Me? – Elena Varvello tr. Alex Valente, Two Roads/John Murray
Victoria Cribb er þýðandi Skuggasunds og Quentin Bates þýddi Gildruna.
Þess má geta að Arnaldur hlaut Gullna rýtinginn árið 2005 fyrir Grafarþögn.