Hugsjór, ný ljóðabók eftir Jóhann Hjálmarsson er komin út. Þetta er fyrsta ljóðabók Jóhanns í níu ár en hann hefur í áranna rás ort ljóð og þýtt.
Fyrsta ljóðabók hans, Aungull í tímanum, kom út árið 1956, þegar hann var aðeins sautján ára. Ljóðabókin Hljóðleikar frá árinu 2000 var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á um 30 tungumál og sérstakar bækur með ljóðum hans hafa komið út í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Bandaríkjunum og á Spáni. Ljóðaúrval Jóhanns á ensku, Of the Same Mind, í þýðingu Christophers Burawa, fékk fyrstu verðlaun bandaríska forlagsins Toad Press 2005.