Bækur duftsins: Villimærin fagra
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 505 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 490 kr. |
Bækur duftsins: Villimærin fagra
490 kr. – 2.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 505 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 490 kr. |
Um bókina
Malcolm Polstead býr með foreldrum sínum í gamalli krá nálægt Oxford ásamt fylgjunni sinni, henni Ástu. Saman skemmta þau sér á bátnum sínum, Villimeynni fögru, og sinna stundum erindum fyrir nunnurnar í klaustrinu á hinum bakkanum. Dag einn kemst Malcolm að því að nunnurnar hafa fengið dvalargest, litla stúlku sem heitir Lýra. Þegar skelfilegt flóð skellur yfir bjargar hann lífi hennar og leggur af stað með hana á Villimeynni fögru í háskalegt ferðalag undan flóði og myrkum öflum.
Aðadáendur margverðlaunaðs þríleiks Philips Pullman um stúlkuna Lýru, vini hennar og andstæðinga og töfraheiminn sem þau byggja fögnuðu gífurlega þegar fréttirst að von væri á nýjum þríleik sem hlotið hefur nafnið Bækur Duftsins. Og þeir hafa sannarlega ekki orðið fyrir vonbrigðum; Villimærin fagra hefur hlotið afar góðar viðtökur víða um heim.
Philip Pullman er einn virtasti rithöfundur samtímans og þekktastur fyrir bækurnar Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn sem hafa verði hlaðnar lofi og viðurkenningum.
Guðni Kolbeinsson þýddi.
3 umsagnir um Bækur duftsins: Villimærin fagra
Arnar Tómas –
Ofan á þennan góða texta og ljómandi skemmtilega ævintýraheim með fylgjum, álfum og brjáluðum vísindum bætist svo sviphörð spenna sem freistar lesanda strax í upphafi að skoða öftustu síðuna.
Júlía Margrét Alexandersdóttir / Morgunblaðið
Arnar Tómas –
„Hörkuspennandi og töfrandi bók með minnisstæðum persónum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Saga uppfulll af spennu og ævintýrum, sem mun gleðja alla aðdáendur Pullmans og skilja þá eftir þyrsta í framhaldið“
Publishers Weekly