Borðaðu froskinn! – 21 frábær leið til að hætta að fresta og afkasta meiru á styttri tíma

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 128 2.190 kr.
spinner

Borðaðu froskinn! – 21 frábær leið til að hætta að fresta og afkasta meiru á styttri tíma

2.190 kr.

Borðaðu froskinn! - 21 frábær leið til að hætta að fresta og afkasta meiru á styttri tíma
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 128 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Borðaðu froskinn! 21 frábær leið til að hætta að fresta og afkasta meiru á styttri tíma. Það er einfaldlega ekki nægur tími til að gera allt á verkefnalistanum okkar – og það verður það aldrei. Árangursríkt fólk reynir ekki að gera allt. Það lærir að fókusa á mikilvægustu verkefnin og ganga úr skugga um að þeim sé lokið. Þau borða froskana sína.

Gamalt máltæki segir að ef það fyrsta sem þú gerir á hverjum morgni sé að borða lifandi frosk, getirðu farið út í daginn með ánægjuna af að vita að það versta sem þú lendir í þann daginn sé yfirstaðið. Hjá Brian Tracy er það að borða frosk myndlíking fyrir að tækla það verkefni sem er þín mesta áskorun – en líka það sem getur haft hvað mest jákvæð áhrif á líf þitt. Borðaðu froskinn! sýnir þér hvernig á að skipuleggja hvern dag svo þú getir miðað út þessi veigamiklu verkefni og lokið þeim á skilvirkan og árangursríkan hátt.

Síðan bókin kom fyrst út á ensku fyrir nærri tveim áratugum, hefur hún verið ein söluhæsta bókin um tímastjórnun og frestunaráráttu. Í þessari uppfærðu útgáfu, hefur Brian bætt við tveimur köflum. Sá fyrri útskýrir hvernig þú getur notað tækni til að minna þig á hvað er mikilvægast og varið þig gegn því sem hefur minna vægi. Seinni kaflinn er með góð ráð til að halda einbeitingunni, nú á tímum endalausra truflana, rafrænna og annarra. En eitt hefur ekki breyst: Brian Tracy kemur sér beint að efninu varðandi hvað er nauðsynlegt fyrir árangursríka tímastjórnun: ákvörðun, ábyrgðartilfinning og ákveðni.

Þessi bók getur gjörbreytt lífi þínu, en hún sér til þess að þú náir að klára fleiri mikilvæg verkefni – í dag!

Brian Tracy er stjórnarformaður og forstjóri Brian Tracy International. Sem lykilræðumaður og námskeiðshaldari heldur hann fyrirlestra fyrir yfir 250.000 manns á hverju ári. Hann er metsöluhöfundur meira en 80 bóka sem hafa verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hann hefur starfað sem ráðgjafi og þjálfari yfir 1.000 stórfyrirtækja og yfir 10.000 meðalstórra fyrirtækja í meira en 75 löndum.

Tengdar bækur

13.490 kr.
1.490 kr.
Pési&Pippa_litli_pollurinn
2.790 kr.
4.390 kr.
Dagbók-barnsins
4.990 kr.
Vesturbærinn stór
4.590 kr.
2.990 kr.3.990 kr.
1.690 kr.3.490 kr.
Finnum jafnvægi
4.190 kr.
Út fyrir rammann - Tólf lífsreglur
4.290 kr.
Einfaldara líf
3.390 kr.
1.990 kr.3.690 kr.
Náðu tökum á þyngdinni
1.990 kr.4.290 kr.
Einskonar töfrar
4.790 kr.
Dagbók 2021
4.190 kr.
Listin að dáleiða
5.190 kr.
4.290 kr.
365 - Fyrir mömmu
3.390 kr.

INNskráning

Nýskráning