Frelsi mannsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 172 | 4.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 172 | 4.290 kr. |
Um bókina
Í þessu klassíska verki skorar heimsspekingurinn J. Krishnamurti (1895-1986) á lesendur að leggja til hliðar allar fyrirfram mótaðar hugmyndir – allt sem við teljum okkur vita um málefni á borð við ást, hamingju, ofbeldi, fegurð og dauða – og lærum að horfast í augu við okkur sjálf eins og við erum í raun og veru.
Krishnamurti er talinn einn merkasti hugsuður 20. aldar og hafði meðal annars mikil áhrif á þá Halldór Laxness og Þórberg Þórðarson sem báðir fóru á fund hans á millistríðsárunum. Sjálfur hafnaði Krishnamurti þeirri hreyfingu sem upphaflega kom honum á framfæri við heimsbyggðina og barðist ævilangt gegn hverskyns átrúnaði og kerfisbundnum lausnum á vanda mannsins.
Orð hins indverska spekings eiga jafnvel enn brýnna erindi við heimsbyggðina nú þegar við spyrjum okkur hvernig við getum lifað í sátt við okkur sjálf, hvert annað og náttúruna sem við reiðum okkur á.