Úrvalssögur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2003 208 990 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2003 208 990 kr.
spinner

Um bókina

Ólafur Jóhann Sigurðsson var eitt helsta skáld þjóðarinnar á 20.öld. Hann skrifaði margar stórar raunsæisskáldsögur, m.a. sagnabálkinn um Pál Jónsson blaðamann, og fyrir ljóð sín hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976.

Það voru þó ekki síst smásögur Ólafs Jóhanns sem skópu orðstír hans sem rithöfundar og hann er ótvírætt meðal bestu smásagnahöfunda íslenskra bókmennta. Ólafur Jóhann hafði frábær tök á hinu knappa og kröfuharða formi, og sögur hans fjalla um þau raunsæislegu efni sem gjarna eru aðall góðra smásagna, fegurðarþrá og ljótleika, mannúð og samkennd, rangsleitni og sundurlyndi. Ólafur Jóhann Ólafsson, sonur skáldsins, hefur valið bestu smásögur hans í eitt safn og fylgir þeim úr hlaði með formála.

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifar eftirmála um höfundinn og smásögur hans.

Tengdar bækur

Svefngarðurinn
5.390 kr.
Lög unga fólksins
3.290 kr.
Sjálfsát - Að éta sjálfan sig
4.390 kr.
Herbergi í öðrum heimi
3.190 kr.
Smásögur heimsins - Evrópa
4.290 kr.
500 dagar af regni
4.490 kr.
Heimafólk
990 kr.
Strá
990 kr.1.690 kr.
Kláði
3.290 kr.

INNskráning

Nýskráning