Ég skal kveða um eina þig alla mína daga – ástarljóð Páls Ólafssonar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 352 3.390 kr.
spinner

Ég skal kveða um eina þig alla mína daga – ástarljóð Páls Ólafssonar

3.390 kr.

Ég skal kveða um eina þig alla mína daga - ástarljóð Páls Ólafssonar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 352 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Ástarljóðin eru fyrst og síðast skáldleg tilfinningatjáning en í tímaröð mynda þau jafnframt sögu sem einnig er skýrð með stuttum lesköflum.

List Páls er borin uppi af eldi hjartans, hröðum æðaslætti og óvenju léttvængjuðum orðum. Kvæðin grípa okkur enn fastari tökum þegar þau, eitt af öðru, svipta hulunni af ástarsögu þeirra Páls og Ragnhildar Björnsdóttur.

„Mín kvæði eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí,“ skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn.

 

Fyrst satt eg ekki segi

Fyrst satt eg ekki segi

svo er best eg þegi

en eg get ekki þagað

af því hjartað dagað

hefur uppi hjá þér

og hleypur aldrei frá þér.

Það að nátttrölli orðið er

ástin mín kær, í faðmi þér.

 

Ástríku augun þín

Ástríku augun þín eilífðar stúlkan mín rændu mig ró.

Ofin með æðum blá eins hvít og mjöll að sjá mundin þín mjúk og smá mig að sér dró.

Hvíldi´ eg við heilagt brjóst, hjarta þitt fann ég slóst, mín hjartans mey.

Eftir þann ástarfund eg man þig hverja stund, uns sé þig sætan blund sofna ég ei.

Tengdar bækur

Úr landsuðri og fleiri kvæði
4.290 kr.
Úrval ljóða 1982-2012
4.290 kr.
Meðgönguljóð - úrval
4.490 kr.
Ljóð muna ferð - úrval úr ljóðum Sigurðar Pálssonar
5.190 kr.
Dagur Sigurðarson: ritsafn 1957-1994
2.590 kr.
Sorgin í fyrstu persónu
3.490 kr.
Tómas Guðmundsson - Ljóðasafn
4.290 kr.

INNskráning

Nýskráning