Fornar hafnir – útver í aldanna rás
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 320 | 12.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 320 | 12.990 kr. |
Um bókina
Fornar hafnir – útver í aldanna rás er ljósmyndabók eftir Karl Jeppesen. Hér er að finna ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Ferðalagið hefst á Horni og fer síðan hringferð allt í kringum landið. Áningarstaðirnir eiga það allir sameiginlegt að héðan réru forfeður okkar í landinu til fiskjar.
Allvíða má greina búðir sem hafa að hluta sokkið í landið, horfið gras eða sand. Annarsstaðar hefur nútíminn ruðst yfir hinar fornu minjar með landfyllingum og mannvirkjum. En jafnt er landslag staðanna og útsýn þaðan til menja um hina hörðu lífsbaráttu og mannlíf liðinna alda.
Bókin er liðlega 300 síður í stóru broti og hefur að geyma 550 litmyndir. Höfundurinn Karl Jeppesen á að baki farsælan feril sem kennari, dagskrárgerðarmaður, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður.