Átta fjöll
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 233 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 233 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Átta fjöll er einstæð saga um sterka og einlæga vináttu tveggja drengja sem eiga sér ólíkan bakgrunn og hvernig samband þeirra þróast, breytist og reynir á þá í áranna rás.
Pietro er einmana strákur sem elst upp hjá foreldrum sínum í Mílanó. Það eina sem sameinar fjölskylduna er ástin á fjöllum Norður-Ítalíu og þangað fara þau á hverju sumri. Þar kynnist Pietro kúahirðinum Bruno, sem þekkir fjöllin en er um leið rígbundinn þeim.
Þeir eyða sumrunum í að kanna þau og læra um leið að þekkja hvor annan og sjálfa sig, hæfileika sína, tilfinningar og takmarkanir. Og þótt leiðir þeirra skilji og Bruno verði um kyrrt uppi í fjöllum en Pietro flakki um heiminn slitnar bandið sem tengir þá saman aldrei.
Paolo Cognetti er rithöfundur frá Mílanó sem býr ýmist í New York eða í fjallakofa í Ölpunum. Átta fjöll varð metsölubók á Ítalíu og hlaut Strega-verðlaunin, virtustu bókmenntaverðlaun Ítala, árið 2017, og einnig Strega Giovani-verðlaunin fyrir bestu bók ungs rithöfundar. Bókin hefur vakið mikla athygli víða um heim og verið þýdd á yfir 30 tungumál.
Brynja Cortes Andrésdóttir þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 18 mínútur að lengd. Arnmundur Ernst Backman les.
2 umsagnir um Átta fjöll
Arnar Tómas –
„Átta fjöll er einstök saga tveggja vina sem velja sér ólíkar leiðir í lífinu eftir að hafa að hluta til alist upp saman…“
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir / Morgunblaðið
Eldar –
„Átta fjöll er ljúf og skemmtileg lesning en á sama tíma bók sem varpar fram spurningum um lífið sem við lifum og lífið sem við hefðum viljað lifa og margt fleira. “
Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið