Ávísun um uppdrátta- og málaralistina
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 126 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 126 | 2.990 kr. |
Um bókina
Ávísun um uppdrátta- og málaralistina eftir Helga Sigurðsson (18151888) er eina íslenska ritsmíðin frá fyrri öldum sem fjallar með fræðilegum hætti um myndlist.
Hún er hugsuð sem kennslubók í teikningu og málun og var líklega samin í Kaupmannahöfn veturinn 18461847. Meginefni ritsins er fjarvíddarteikning en það fjallar einnig um listmálun og gildi og gagnsemi myndlistar.
Höfundurinn stundaði nám í læknisfræði og myndlist í Kaupmannahöfn en gerðist síðar læknir, bóndi og prestur á Vesturlandi. Hann var einnig ljósmyndari, forngripasafnari og bragfræðingur og var auk þess einn af stofnendum Þjóðminjasafns Íslands.
Ávísun um uppdrátta- og málaralistina er merk heimild um íslenskra myndlistarsögu og hefur ekki fyrr verið gefin út í heild. Gunnar Harðarson gaf út textann og ritar ítarlegan inngang.