Íslensk knattspyrna 2017

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 272 1.690 kr.

Íslensk knattspyrna 2017

1.690 kr.

Íslensk knattspyrna 2017
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 272 1.690 kr.

Um bókina

Íslensk knattspyrna 2017 er eftir Víði Sigurðsson en þetta er 37. árið í röð sem árbók knattspyrnunnar á Íslandi kemur út.

Bókin er 272 blaðsíður og myndirnar í henni eru rúmlega 380. Þar eru m.a. liðsmyndir af sigurvegurum í öllum deildum og flokkum, öllum liðum sem fóru upp um deild í meistaraflokkum karla og kvenna, og svo af miklum fjölda annara liða og einstaklinga.

Í bókinni eru viðtöl við Hannes Þór Halldórsson, Sif Atladóttur, Hauk Pál Sigurðsson, Söndru Maríu Jessen og Guðna Bergsson. Þar er einnig að finna ítarlega umfjöllun um úrslitakeppni EM kvenna í Hollandi, um alla landsleiki Íslands í undankeppni HM karla og kvenna, þar með talið hvernig Ísland tryggði sér sæti á HM 2018 í Rússlandi, sem og aðra landsleiki í öllum aldursflokkum. Fjallað er um það sem er framundan hjá landsliðunum, nýja Þjóðadeildin er útskýrð o.fl.

Fjallað er ítarlega um allar deildir Íslandsmótsins og gangur þess rakinn frá umferð til umferðar í efri deildunum, umfjöllun um alla Evrópuleiki íslensku liðanna, bikarkeppnina, deildabikarinn, nákvæmt yfirlit yfir atvinnumennina erlendis og hvað þeir gerðu á árinu, og margt fleira.

Þá er í bókinni afar nákvæm tölfræði um alla leikmenn í efstu deildum karla og kvenna, liðsskipanir allra liða í öllum deildum meistaraflokks koma fram ásamt leikja- og markafjölda, öll úrslit og lokastöður í öllum yngri flokkum á Íslandsmótinu. Þar má finna hverjir hafa spilað mest og skorað mest í öllum deildum, hvaða íslensku knattspyrnumenn og konur hafa spilað flesta leiki á ferlinum, hvaða Íslendingar hafa spilað í Meistaradeild Evrópu, og ótalmargt fleira.

Í bókinni er m.a. samantekt á því hvaða leikmenn áttu flestar stoðsendingar í efstu deildum karla og kvenna á árinu en efstu leikmenn í báðum deildum eru verðlaunaðir af Bókaútgáfunni Tindi í útgáfuhófi vegna bókarinnar.

Tengdar bækur

Betri útgáfan
2.990 kr.
Hrein karfa
4.890 kr.
Dóttir
1.490 kr.4.290 kr.
Íslensk knattspyrna 2019
5.990 kr.
Fjarþjálfun
4.890 kr.
Hlaupabókin
2.390 kr.3.890 kr.
Krakkajóga: Einfaldar jógastöður fyrir hressa krakka á öllum aldri
2.990 kr.
Hormónajóga - leið til að endurvekja hormónabúskap þinn
5.190 kr.
Matardagbók
2.590 kr.
Æfingadagbók
2.590 kr.
GæðaGolf
5.190 kr.
Talandinn: er hann í lagi? - vísindi á mannamáli
3.790 kr.

INNskráning

Nýskráning