Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Sagnaþættir Guðfinnu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 272 | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 272 | 3.990 kr. |
Um bókina
Sagnaþættir Guðfinnu er bók eftir Guðfinnu Ragnarsdóttur sem er ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins og fv. kennari.
Í Sagnaþáttum Guðfinnu kynnumst við lífi alþýðufólks víðsvegar um landið. Hér eru ættarsögur úr Dölunum, frásögn af góðmenninu Skapta lækni í Reykjavík og harmþrungin örlög Guðnýjar skáldkonu á Klömbrum í Aðaldal. Skeiðamenn af Bernhöftsætt birtast okkur ljóslifandi og Óli Skans er dreginn fram í dagsljósið.
Sögusvið þáttanna er jafnt fyrir norðan og sunnan en teygir sig út fyrir landsteinana í tveimur síðustu þáttunum.
Hér eru sögur úr ættanna kynlega blandi framreiddar af sagnakonunni Guðfinnu sem hefur frá blautu barnsbeini lagt sig eftir fróðleik og örlögum genginna kynslóða.