Sumar án karlmanna
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 231 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 231 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2013 | 490 kr. |
Um bókina
Þegar Boris fer frá Míu eftir þrjátíu ára hjónaband missir hún vitið – þó aðeins tímabundið. Þegar hún kemur aftur til sjálfrar sín ákveður hún að jafna sig sumarlangt á æskuslóðum. Í fyrstu er hún upptekin af eigin eymd en smám saman fer fólkið í bænum að vekja áhuga: öldruð móðir hennar og vinkonurnar á elliheimilinu, táningsstelpurnar sem hafa skráð sig á bókmenntanámskeið hjá henni, unga móðirin í næsta húsi …
Tengsl fólks og togstreita, dulin og opinská átök, leyndir draumar og sagðar og ósagðar sögur, allt verður það Míu að efnivið í endurskoðun á lífinu og verðmætum þess.
Siri Hustvedt er einn dáðasti samtímahöfundur Bandaríkjamanna. Hún er af norskum ættum og í æsku dvaldi hún eitt sumar í Reykjavík; að hennar sögn var það þá sem bókmenntaáhugi hennar kviknaði fyrir alvöru. Bækur hennar hafa verið þýddar á tugi tungumála en Sumar án karlmanna er sú fyrsta sem kemur út á íslensku, eftirminnileg, grátbrosleg og einstaklega heillandi kvennasaga.
Nanna Þórsdóttir þýddi.
7 umsagnir um Sumar án karlmanna
Elín Pálsdóttir –
„Sumar án karlmanna eftir Siri Hustvedt er besta bókin á markaðnum nú um stundir. Skemmtileg, snjöll og vitsmunaleg skáldsaga.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er djöf… – þetta er mjög flinkur höfundur!“
Egill Helgason / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„Hún virðist vita allt – um vísindi, bókmenntir, jafnvel gamlar kvikmyndir … þessi kaldhæðnislegi húmor er alveg dásamlegur … og aðalpersónan er gríðarlega vel gerð.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„Austen er eins og bíll sem líður áfram með lokað húdd en Hustvedt sýnir manni undir húddið, hvernig hún býr til söguna, talar við mann sem lesanda.“
Sigurður Valgeirsson / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„Vel og skemmtilega skrifuð saga“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Yndisleg … hæfni hennar felst í að fullvissa lesandann um að hann hafi séð inn í sálarkima annarrar manneskju.“
Observer
Elín Pálsdóttir –
„Dásamlega vel úthugsuð, háalvarleg og stórkostlega skarpskyggn.“
Guardian