Flöskuskeyti frá P: Deild Q #3
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2012 | 524 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2012 | 524 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 490 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Á lögreglustöðinni í Wick, nyrst í Skotlandi, hafði óralengi staðið rispuð flaska með bréfi í. Enginn gaf henni gaum eða velti fyrir sér hvað orðið þýddi sem mátti lesa gegnum glerið: HJÁLP.
Þegar Carl Mørck í Deild Q hjá dönsku lögreglunni fær flöskuskeytið í hendur telur hann að um barnabrek sé að ræða en því betur sem Assad aðstoðarmaður hans skoðar velkt skeytið, því betur átta þeir sig á skilaboðum þess, að tveimur drengjum hafi verið rænt á tíunda áratugnum. En hvaða drengir voru það og af hverju var hvarf þeirra aldrei tilkynnt? Smám saman flækjast Carl og Assad í net gáfaðs og tilfinningalauss mannræningja – sem reynist enn vera að.
Flöskuskeyti frá P er af mörgum talin magnaðasta saga Jussi Adler-Olsen og hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 18 klukkustundir og 34 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.
3 umsagnir um Flöskuskeyti frá P: Deild Q #3
Kristrun Hauksdottir –
„… vel samin bók og æsispennandi … Svo góð er þessi bók að það er ekki hægt að leggja hana frá sér ólesna … einfaldlega besta spennusagan á markaðnum nú um stundir.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Olsen er mikill sögumaður og vefur söguþráðinn af list. Sögur hans eru afburða afþreying …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Kristrun Hauksdottir –
„Jussi Adler Olsen kann að skrifa spennusögur, um það er engum blöðum að fletta … Honum hefur tekist að lýsa illskunni, ekki með því að upphefja hana heldur með því að færa hana niður hversdagslegt plan.Flöskuskeyti frá P er frábær saga, vel skrifuð og spennandi.“
Kolbeinn Óttarsson Proppé / Fréttablaðið